Nú hefur verið gefin út skýrsla um framkvæmd sumarmarkmiða ársins 2017 og í henni geri ég upp árangurinn í sumar. Tilgangurinn með skýrsluskrifunum er „að fá mig til þess að meta heildstætt hvernig mér gekk að framkvæma sumarmarkmið ársins“ eins og kemur fram í skýrslunni. Hún er birt til að veita sjálfum mér frekara aðhald og svo aðrir geti mögulega lært af ferlinu.