Sumarmarkmið 2026

Listinn yfir sumarmarkmið ársins 2026 er áttundi listinn yfir sumarmarkmið sem ég hef sett saman. Aðstæður leiddu til þess að ekki var settur saman sumarmarkmiðslisti árabilin 2022-2025. Í grófum dráttum er fyrirkomulagið á þann veg að ég set saman lista yfir markmið sem ég vil stefna á að ljúka fyrir tiltekna dagsetningu. Dagsetningin í ár er 1. september 2026 og vísað til hennar sem lokafrests. Til að veita sjálfum mér aðhald er fresturinn túlkaður afar strangt og verður ekki færður. Annar þáttur sem hvetur til aðhalds er að sett eru skilyrði og/eða skilgreiningar við hvert markmið sem eiga að leysa úr helstu óvissuþáttum sem gætu valdið vandræðum og fækka matskenndum þáttum.

Ár hvert auglýsi ég eftir tillögum að markmiðum og gef tiltekinn frest til þess. Fyrst var auglýst eftir tillögum þann 13. júní 2026 og var frestur veittur út 21. júní það ár til að senda mér þær. Tillögufresturinn átti einnig við um mínar eigin tillögur. Haldið var áfram þeirri nýjung að vinna úr tillögum eftir sérstaklega skráðum viðmiðum og mat á samræmi hverrar þeirrar við langtímaáherslurnar.

Á listanum í ár eru 12 aðalmarkmið og 2 uppfyllingarmarkmið, sem eru nokkru færri en árið 2021. Aðalmarkmiðin eru þau markmið sem áherslan er á og álitið raunhæft að ljúka þeim fyrir lokafrestinn með hliðsjón af öðrum aðalmarkmiðum, ef allt gengur vel. Uppfyllingarmarkmiðin lúta ekki þeim viðmiðum og er aðallega unnið í þeim þegar ekki er hægt að vinna í aðalmarkmiði þá stundina eða sérstaklega hliðhollar aðstæður séu til staðar.

Listinn er birtur til þess að veita möguleika á enn frekara aðhaldi gagnvart mér sjálfum og jafnframt gefa öðrum hugmyndir hvað þau geta gert í sumar (þar sem við á). Þegar nánari skilgreining og skilyrði hafa sett eru þau einnig tekin fram. Áætlað er að uppfæra listann yfir sumarið með stöðunni hverju sinni eða í seinasta lagi stuttu eftir að lokafresturinn er liðinn. Staðan sem gefin er upp er staða viðkomandi markmiðs seinast þegar stöðu þess var breytt.

Almennt um sumarmarkmið

Hlekkir sem eru á sumarmarkmiðalistanum sjálfum eru eingöngu til upplýsinga en eru ekki endilega hluti af skilgreiningu einstakra markmiða.

Aðalmarkmið

Horfa á fyrstu þáttaröðina af Better Call Saul
Staða: Óklárað (0 af 10)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Markmiðið telst klárað þegar ég hef horft á hvern þátt í fyrstu þáttaröðinni af Better call Saul frá upphafi til enda.

Synda 100 metra í 5 sundlaugum
Staða: Óklárað (0 af 5)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Þetta skulu vera fimm mismunandi almenningssundlaugar.
— Ekki er gerð krafa um að eingöngu sund á sérstökum brautum teljist með.
— Heimilt skal að miða við að markmiðið teljist klárað fyrir viðkomandi sundlaug séu syntar nógu margar ferðir á sérstökum sundbrautum sem samkvæmt yfirlýstri mælingu sundbrautar ættu samanlagt að ná a.m.k. 100 metra vegalengd.

Verða ‚Anti-Magic Master‘ í leiknum ‚Librarian: Tidy Up the Arcane Library‘
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég þarf að afla þessa Steam achievement í umferð sem hefst og lýkur innan framkvæmdartímabils sumarmarkmiðsins.
— Ekki er gerð krafa að umferðin sé spiluð í einni samfelldri lotu né að þær séu nátengdar.
— Mér skal heimilt að notfæra mér annað efni utan leiksins, svo sem leiðbeiningar og samantektir, sem auðvelda mér verkið.
— Ég skal vera sá eini sem spilar téðar lotur sem vinna að framgangi markmiðsins, og skal ekki vera notuð nein sjálfvirkni við spilun leiksins sem ekki er þá þegar studd af leiknum sjálfum.

Ná ákveðnum árangri í StreetComplete
Staða: Óklárað (0 af 4000)
Skilgreiningar/skilyrði:
— StreetComplete er app sem er meðal annars á Google Play Store. Stiga er að jafnaði aflað með því að útvega svör við spurningum (e. quests) um sem eiga við um tiltekna hluti (svo sem gangbrautir, biðstöðvar, vegi, byggingar, og verslanir) sem þegar hafa verið skráðir inn á OpenStreetMap.
— Á framkvæmdartímabili sumarmarkmiðalistans þarf ég að hafa aflað mér 4000 fjölda stiga með notkun appsins StreetComplete, en öflun stiga fyrir eða eftir það tímabil teljast ekki með í þeim fjölda.
— Í upphafi framkvæmdartímabils skal ég senda inn öll svör sem ég hef ekki þegar sent inn í kerfið hjá StreetComplete, ef einhver, og skulu stig sem ég afla með þeirri innsendingu ekki teljast með. Í kjölfar þeirrar athugunar og/eða innsendingar skal stigafjöldinn sem ég verð þá með skráður hjá sumarmarkmiðinu.
— Við öflun svara þarf ég að hafa verið nægilega nálægt viðkomandi stað til að geta aflað svaranna og svörin þurfa að byggjast á upplýsingum sem ég skynja þar, svo sem með heyrn, sjón, eða snertingu.
— Ekki er gerð krafa um að svör sem ég sendi inn skuli sérstaklega staðfest af öðrum aðila upp á réttleika. Þó má ekki vísvitandi senda inn svör þegar vitað er að þau séu röng á þeim tíma eða setja þau inn í kæruleysi um hvort þau séu rétt eða röng. Einföld mistök eða réttmætur misskilningur skulu ekki sjálfkrafa leiða til ógildingar á framlaginu.

Stigafjöldi í StreetComplete við upphaf framkvæmdartímabils: 2260 (engin svör biðu innsendingar við upphaf tímabilsins)

Fara á sýninguna ‚Undur íslenskrar náttúru‘ í Perlunni
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Enska nafn sýningarinnar er ‚Wonders of Iceland‘.
— Ég þarf að hafa farið inn á sýninguna og verið þar í a.m.k. 30 mínútur.
— Í heimsókninni þarf ég a.m.k. að hafa farið á undirsýningarnar um jökla og íshella ásamt eldgosasýningu.

Heimsækja safnið Whales of Iceland
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég þarf að hafa farið inn á safnið og verið þar í a.m.k. 30 mínútur.

Horfa á tiltekinn fjölda kvikmynda sem ég hef ekki séð af topp 250 lista IMDb
Staða: Óklárað (0 af 9)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég þarf að hafa séð kvikmyndina frá upphafi hennar og þar til birting er hafin á nafnalistanum við lok hennar.
— Ég má ekki muna eftir að hafa séð kvikmyndina áður á þeim tíma sem ég er að horfa á hana. Síðari endurminningar um að hafa séð kvikmyndina áður, eftir að birting nafnalistans er hafin, teljast ekki gegn þessu markmiði.
— Fjöldi kvikmynda skal vera 9 talsins.

Fara á aðalmeðferð a.m.k. tveggja dómsmála
Staða: Óklárað (0 af 2)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég má ekki vera aðili máls eða hafa nákomin tengsl við neinn þeirra.
— Þetta skal vera munnlegur málflutningur í efnislegri meðferð máls.
— Ekki þarf að vera um sama mál að ræða í bæði skiptin.
— Ég þarf að vera viðstaddur munnlega málflutninginn frá upphafi til enda.

Gróðursetja tré eða blóm
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég þarf persónulega að hafa gróðursett tréð eða blómið.
— Tréð eða blómið má jafnframt enn þá vera fræ.

Lesa bók sem ég hefði ekki endilega valið mér sjálfur
Staða: Óklárað (0 af 3)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Bækurnar skulu vera í formi hljóðbókar sem eru til sölu á Audible og áhlustanleg á Íslandi á þeirri stundu án blekkinga á staðsetningu minni.
— Hljóðbókin þarf að vera flutt á íslensku eða ensku. Einstaka setningar eða bútar á öðrum tungumálum teljast þó ekki brotlegir.
— Ég þarf að hafa hlustað á hljóðbókina frá upphafi til enda svo hún teljist fyrir markmiðið. Hlustunin þarf ekki að hafa verið í einni lotu.
— Lengd (upplestur) hverrar og einnar hljóðbókar má ekki vera lengri en nákvæmlega 30 klst.
— Auglýst skal eftir tillögum um bækur með opinberum hætti og veittur a.m.k. þriggja sólarhringa frestur frá innsetningu færslunnar.
— — Eingöngu tillögur sem settar eru inn sem athugasemd við þá færslu teljast gildar.
— — Tillaga er eingöngu gild ef hljóðbókin finnst á Audible þegar ég leita að henni og, ef leitin vísar á margar bækur, að ekki sé réttmætur vafi um það hver þeirra tillagan snerist um.
— — Komi einhver með fleiri en þrjár tillögur að bókum skulu eingöngu þrjár fyrstu tillögurnar gilda. Heimilt er að breyta tillögu fram að lokum tillögufrests.
— — Komi engin tillaga innan frestsins skal heimilt að gera aðra tilraun með nýjum fresti af sömu lengd. Séu lagðar til færri en þrjár mismunandi bækur í fyrri tilraun skal seinni tilraunin snúast um viðbótarbækur. Komi heldur engin gild tillaga þá, eða heildarfjöldi bóka nær ekki þremur, telst markmiðið ókláranlegt.
— — Nú er lögð til heil sería og skal tillagan þá álitin einvörðungu ná til fyrstu bókarinnar í seríunni.
— — Tillaga um bók sem ég hef lesið áður skal falla sjálfkrafa niður.
— Berist eingöngu þrjár tillögur um mismunandi bækur teljast þær sjálfvaldar ef þær uppfylla skilyrði þessa markmiðs. Berist fjórar eða fleiri tillögur skal gerð önnur færsla þar sem frambornar tillögur sem uppfylla skilyrði þessa markmiðs eru settar fram.
— — Þær þrjár bækur sem hljóta flest atkvæði skulu vera bækurnar sem þarf að klára fyrir þetta markmið.
— — Atkvæðagreiðslan skal vera í formi samþykktarkosningu, þ.e. að heimilt er að greiða atkvæði með meira en einni bók á listanum án þess að vægi hvers atkvæðis minnki. Hver bók getur eingöngu fengið eitt atkvæði frá hverjum kjósanda.
— — Atkvæði um bækur sem eru ekki á listanum eru ógild.
— — Frestur til að greiða atkvæði í þeirri kosningu skal vera tveir sólarhringar frá innsetningu færslunnar. Fram að lokum atkvæðagreiðslufrests er kjósanda heimilt að breyta atkvæði sínu.
— — Ef jafntefli veldur óvissu um hvaða bækur raðast í efstu þrjú sætin, er mér frjálst að skera úr um innbyrðis röð þeirra eftir eigin geðþótta.
— Nú kemur í ljós við eða eftir atkvæðagreiðslu að einhver bókin uppfyllir ekki skilyrði þessa markmiðs eða hættir að uppfylla þau áður en ég klára að hlusta á hana, og skal þá miða við þrjár efstu bækurnar á listanum að slíkri bók brottfelldri. Ef heildarfjöldi bóka verður færri en þrír við þetta skal heimilt að óska eftir tillögum og halda atkvæðagreiðslu um þær fyrir þau sæti sem á vantar, sbr. fyrrnefndar reglur.

Púsla púsl
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Púslið þarf að hafa verið framleitt sem að minnsta kosti 3000 stykkja púsl. Miða skal við auglýstan fjölda stykkja.
— Í mesta lagi einn hlutur þess má vera týndur.

Skjóta af boga
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég skal hafa hagnýtt tíma hjá Bogfimisetrinu eða öðrum aðila sem býður upp á aðstöðu til þess að skjóta af boga og á þar til gerð skotmörk.
— Lotan skal hafa varið í a.m.k. 30 mínútur frá þeim tíma sem ég skýt fyrst af boga og þar til seinasta skot mitt í lotunni fer fram. Möguleg kennsla er meðtalin í þeim tíma.
— Markmiðið má einnig teljast uppfyllt ef ég hef skotið a.m.k. tíu skotum af boga í heildina á framkvæmdartímabili markmiðsins, óháð lotulengd.

Uppfyllingarmarkmið

Taka myndir af 42 mismunandi kisum
Staða: Óklárað (0 af 42)
Skilgreiningar/skilyrði:
— Til katta í skilningi sumarmarkmiðsins teljast lífverur sem falla undir líffræðilegu tegundina Felis.
— Myndir í skilningi markmiðsins geta bæði verið kyrrmyndir og myndbönd.
— Kötturinn þarf að vera á lífi þegar ég tek myndina.
— Myndir teknar af öðrum en mér teljast ekki með.
— Sú myndavél sem ég nota þarf að vera í beinni sjónlínu við köttinn sjálfan, þ.e. ekki taka mynd af ketti sem er á skjá eða þvíumlíkt.
— Til að mynd teljist með þarf ég að hafa tekið myndina á framkvæmdartímabili sumarmarkmiðsins.
— Miða skal við fjölda katta sem myndefnið er af, en ekki fjölda mynda.
— Ekki er skilyrði fyrir framgöngu þessa sumarmarkmiðs að ég hafi aldrei tekið mynd af viðkomandi ketti áður en framkvæmdartímabilið hefst.
— Liggi fyrir réttmætur vafi um það hvort um sé að ræða sama kött á tveimur eða fleiri myndum, skal túlka vafann á þann hátt að um sé að ræða sama kött. Inn í það mat skal þó taka til greina fjarlægð á milli þeirra staðsetninga og tímasetningar þegar myndirnar voru teknar.

Teikna/mála mynd og hengja upp
Staða: Óklárað
Skilgreiningar/skilyrði:
— Ég skal hafa varið a.m.k. einni klukkustund í að mála/teikna myndina.
— Ekki er gerð krafa um að málun/teiknun myndarinnar sé lokið.
— Hengja skal myndina á lóðrétt yfirborð, og skal mælanlegt með hallamáli þannig að loftkúlan megi ekki fara út fyrir svarta merkilínu.
— Til að markmiðinu teljist lokið skal myndin vera á lóðrétta yfirborðinu í að minnsta kosti 30 mínútur eða vera á því við lok framkvæmdartímabils sumarmarkmiðalistans.