06.25.08
Posted in Almennt at 12:57 ritaði Svavar Kjarrval
Eftir langa baráttu við veikindi lést amma mín í föðurætt, Helga Haraldsdóttir, í morgun. Ég verð að játa að ég hafði ekki hitt hana rosalega oft og sé ég hálfpartinn eftir því núna. Það er gott að vita að hún er ekki lengur að þjást vegna veikinda sinna en reynt var eftir bestu getu að gera seinustu daga hennar sársaukalausa og held ég að það hafi tekist bara ágætlega.
Dauði hennar kemur degi eftir lát afabróður míns í móðurætt, Hilmars, sem ég hafði eingöngu hitt einu sinni. Því miður veit ég ekki meira um aðdragandann.
Á tímum eins og þessum er maður alltaf minntur á sína eigin framtíð og að á endanum mun maður lenda í sömu örlögum. En ef maður lítur á björtu hliðarnar, þá heldur lífið áfram og maður verður að sætta sig við það. Það er lítið hægt að gera til að hindra það.
Permalink
06.19.08
Posted in Almennt at 18:48 ritaði Svavar Kjarrval
Einhver útvarpsauglýsing er í gangi þessa dagana frá Bónusvídeó sem ég er bendlaður við. Því miður hef ég ekki heyrt auglýsinguna með eigin eyrum en hef fengið senda nokkra texta sem eiga að vera úr henni. Þeir eru nokkuð mismunandi en þeir gefa til kynna að minni fólks er ekki fullkomið. Þetta eru útgáfurnar (leiðrétti stafsetningu þar sem við átti):
1. “Svavar Lúthersson á torrent.is nær í sínar myndir á bónusvideó.is…”
2. “Svavar Lúthersson á torrent.is nær í myndirnar sínar löglega á bónusvideo.is enda topp náungi.”
3. “Svavar Lúthersson hjá Istorrent leigir myndirnar sínar löglega á bónusvideo enda topp náungi.”
Hver sem útgáfan var, þá frétti ég fyrst af þessari auglýsingu í dag enda var ég ekkert með í ráðum við gerð hennar. Einnig kannast ég ekki við að Bónusvídeó eða einhver annar hafi nokkurn tímann haft samband við mig til að fá að nota mig eða nafn mitt í auglýsingum.
Áður en ég spái mikið meira í þetta ætla ég fyrst að hafa samband við Bónusvídeó og heyra hvað þeir hafa að segja um málið.
——
Viðbót 24. júní 2008
Eftir að hafa kynnt skoðun mína við eiganda Bónusvídeó er auglýsingin ekki lengur í birtingu. Hann var almennilegur og þakka ég fyrir það. Að hans sögn fengu þeir góð viðbrögð frá almenningi í tengslum við auglýsinguna en rétthafasamtökin virtust ekki fylgja þeim straumi. Þá fékk ég í hendur hljóðskrá með auglýsingunni og ætti þetta því að vera réttur texti:
“Svavar Lúthersson á torrent.is nær í myndirnar sínar löglega á bónusvídeó.is, enda topp maður. Bónusvídeó.is.”
Því miður var ‘th’-ið í Lúthersson borið fram sem ‘þ’ en réttur framburður er þannig að áherslan er sett á t-ið og h-ið aðskilið en ekki saman. Mætti því segja að framburður þess gæti þýskra áhrifa. Á sömu nótum er Neanderthal komið úr þýsku og gildir það sama um ‘th’-ið í því heiti en grunsamlega margir bera þetta fram sem ‘þ’-hljóð.
Mótmæli mín við birtingu þessarar auglýsingu snúast ekki um rétt til greiðslu fyrir notkun nafnsins. Ég hef aldrei náð í myndir frá bónusvideo.is eða leigt þær með hjálp þeirrar vefsíðu. Mér þykir rangt að ég sé bendlaðir við að gera eitthvað sem ég hef ekki gert (enn þá). Ef nafn mitt er notað á opinberan hátt er rétt að almenningur geti treyst því að um sé að ræða sanna atburði og mína raunverulegu skoðun.
Þar sem auglýsingin er ekki lengur í birtingu og ég get ekki séð neinn skaða vegna hennar þessa stundina, þá sé ég enga ástæðu til að aðhafast neitt frekar í málinu.
Permalink